Dögg Guðnadóttir
Dögg er íslensk listakona sem hefur lengi lagt stund á myndlist og hönnun. Hún er einnig félagsráðgjafi að mennt og hefur alla tíð haft mikinn áhuga á geðheilbrigðismálum. Sjálf er hún með ADHD og hefur barist við ýmsa fylgikvilla þar að lútandi. Eftir að hafa starfað sem félagsráðgjafi á geðdeild Landspítalans urðu til verk sem tengja saman bakgrunn hennar í listum, persónulega upplifun og sýn hennar á tilfinningalíf einstaklinga í flókinni samfélagsmynd. Niðurstaðan eru litrík verk, gerð með blandaðri tækni, sem útfæra geðraskanir og tilfinningar í áþreifanlegan búning með ýmiskonar myndlíkingum. Æpandi neon litir verkanna eru ekki einungis ætlaðir til að túlka ákveðinn hugarheim. Þeir ýta einnig undir taugaspennu áhorfandans sem í kjölfarið á auðveldara með að staðsetja sjálfan sig í verkunum og upplifa tilfinningaleg áhrif listaverksins.
Dögg telur að samfélagið eigi enn langt í land með að viðurkenna umfang og alvarleika geðrænna áskorana. Skilnings og úrræðaleysi ásamt fordómum vega þungt þegar kemur að geðheilbrigðismálum og eru verk hennar meðal annars ætluð til að ýta undir sjáanleika og skilning á þessu sviði.